Það einkennir líklega flesta frumkvöðla að vera ofur bjarsýnir og hafa mikla trú á því sem þeir ætla sér fyrir hendur. Þessir kostir eru nauðsynlegir frumkvöðlum því sjaldnast er leiðin eingöngu upp á við og frumkvöðull þarf á allri sinni bjartsýni að halda til að fallast ekki hendur.
Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að margir sem sækja um styrki í fyrsta skipti fyrir sitt verkefni eru ansi bjartsýnir á að þeir hljóti styrkinn. Því miður er raunin sú að fæstir fá styrk en það á ekki að vera neinn dauðadómur yfir verkefninu. Staðreyndin er sú að ef allir ætla sér að bíða eftir því að fá styrk, þá mun lítið gerast.
Flestir frumkvöðlar gefa vinnu sína um nokkurt skeið þegar þeir vinna í þróun á sinni hugmynd en það kemur að því að nauðsynlegt er að fá fjármagn inn í fyrirtækið til að komast áfram með verkefnið hvort sem það er fjármagn fyrir markaðskostnaði, efniskostnaði, ferðakostnaði eða rekstrarkostnaði.
Uppspretta er leið fyrir fólk í atvinnu- og nýsköpun að ná til annarra sem er með fjármagn og vill leggja fram lánsfé til góðra verka. Íslenskir fjárfestar eiga í vandræðum með að ávaxta fjármagn sitt þar sem bankar bjóða upp á lága vexti í ávöxtun og gjaldeyrishöft eru gildandi. Því getur Uppspretta verið leið fyrir fjárfesta að veita lánsfé til spennandi nýsköpunarverkefna og fá betri ávöxtun en mögulegt er í banka.
Náum árangri saman!