Við hjá Uppsprettu tókum eftir því að það er gat á markaðnum. Frumkvöðlar geta náð sér í fjármagn hér og þar en á nánast öllum stöðum er gert ráð fyrir að viðkomandi sé kominn svolítið af stað með sinn “business” og þurfi að minnsta kosti 20 milljónir til að geta fengið styrk eða fundið annað fjármagn.
Við ákváðum því að koma með lausn sem gerir fólki kleift að sækja um lægri lán fyrir verkefni sem er skemmra á veg komið. Dæmi um lánaumsóknir gætu verið:
- Vöruhönnuður sækir um lán fyrir efniskostnaði svo hann geti byrjað að framleiða og selja vöru sína
- Hugbúnaðarfyrirtæki vantar fjármagn fyrir markaðskostnaði
- Sprotafyrirtæki sækir um lán fyrir tæknibúnaði/tölvum
- Lán fyrir þróunarkostnaði
- o.s.frv.
Staðreyndin er sú að lánveitendur á Uppsprettu vilja sjá ný verkefni blómstra og ný stöf verða til.
Ljóst er að fólk þarf að útskýra hugmynd sína og styðja hana mjög vel með texta til að geta fengið lán á Uppsprettu. Lánveitendurnir sem eru inni á Uppsprettu vilja sjá það að sá sem þeir eru að lána til séu fyrst og fremst með góða hugmynd og í öðru lagi að það fái á tilfinninguna að umsækjendur séu traustsins verðir. Þess vegna er mikilvægt að vanda lánsumsóknina. Það sem starfsmenn Uppsprettu ráðleggja þér að gera eftirfarandi:
- Lýstu verkefninu sem þú ert að fara af stað með vel undir “Tilgangur láns”
- Láttu helstu markmið koma skýrt fram
- Nýttu þér samfélagssíðurnar og settu inn t.d. kynningu um þig eða fyrirtæki þitt á slideshare og linkaðu það á síðuna þína hjá Uppsprettu
- Vandaðu málfar þitt og fáðu einhvern þér nákominn til að lesa yfir umsóknina
- Fylgstu með því hvað aðrir lántakendur eru að gera
- Vertu ósmeykur við að kynna lánsumsóknina þína með því að segja vinum þínum á facebook og twitter frá umsókninni, þannig eykur þú möguleika þína á að fá lánið
- Vertu óhrædd/óhræddur að hafa samband við starfsmenn Uppsprettu í gegnum uppspretta@uppspretta.is ef þú vilt aðstoð
Náum árangri saman!
Hæ,
nú eru að týnast inn innborganir og er ég alveg til í að endurfjárfesta þessar innborganir. En mér finnst þessi lágmarksinnborgun kr. 2.500 vera hindrun… Er alveg viss um að fleiri myndu henda inn 500 kall á lán. Þannig myndi snjóboltinn ykkar rúlla hraðar.
Kv.
Kristinn