Í janúar 2009 ákváðu aðstandendur Uppsprettu að gera eitthvað róttækt til að taka þátt í uppbyggingunni sem ljóst var að þyrfti að eiga sér stað á Íslandi. Okkur langaði að gera eitthvað til að hjálpa sprotafyrirtækjum að fóta sig og fórum að kíkja í kringum okkur og athuga hvað hægt væri að gera. Eftir heilmikið heilabrot og pælingar ákváðum við að það væri kominn tími á að bjóða upp á örlánavef á Íslandi og þann 1. október 2009 fór Uppspretta í loftið.
Örlánavefurinn Uppspretta byggir á hugmyndafræði sem hefur verið til í fjölda ára. Erlendis hefur þetta verið kallað “microloans”, “social lending” og “people to people lending” og til er fjöldinn allur af vefum sem byggja á þessari hugmyndafræði. Fyrst urðu til vefir sem voru til þess gerðir að hjálpa litlum fyrirtækjum í þróunarríkjum að fóta sig en síðustu ár hafa fleiri og fleiri vestrænar útgáfur orðið til.
Á Uppsprettu getur fólk óskað eftir láni eða lánað öðrum. Lántakandi setur fram sínar hugmyndir og óskir á vefnum og laðar þannig að sér lánveitendur. Uppspretta er ekki banki heldur miðlar lánsfé á milli lántakenda og lánveitenda. Á bak við hvert lán eru yfirleitt fjölmargir lánveitendur.
Tilgangurinn með Uppsprettu er að gera þeim sem eru með góðar hugmyndir kleift að fá lánað fyrir þeim. Fjölmörg sprotafyrirtæki eru að stíga sín fyrstu skref en ljóst er að erfitt er að finna fjármagn. Svo dæmi sé tekið getur t.d. vöruhönnuður fengið lán fyrir efniskostnaði til að geta hafist handa við að framleiða vöru sína eða lítið hugbúnaðarfyrirtæki fengið lán fyrir markaðssetningu.