Starfsmenn Uppsprettu skelltu sér á ráðstefnu um social entrepreneurship í Osló í síðustu viku. Mjög gagnleg ráðstefna!
Við hjá Uppsprettu tókum saman stöðuna á vöxtum hjá Uppsprettu í samanburði við bankana.
- Meðalvextir lánveitenda Uppsprettu eru 15,22%.
- Ef eingöngu er horft til nýsköpunarverkefna eru meðalvextir 12%.
- Þegar skoðuð eru vaxtakjör bankastofnana af óverðtryggðum sparnaði eru mánaðarvextir 2,77% til 6,83%.
- Ef upphæð er 100 mkr. eða meiri eru vextir 6,83% hjá MP banka.
- Ef miðað er við upphæðir á sparnaðarreikningi um 1 mkr. til 5 mkr. þá eru vextir um 5,7% (hjá MP banka og Íslandsbanka).
- Verðbólgan í janúar var 6,6%.
Það er því fleiri ástæður til að lána nýsköpunaraðilum en að gera góðverk. Hér sést svart á hvítu að það er mögulegt að fá betri ávöxtun á litlar upphæðir en bankarnir eru að bjóða.
(Skoðaðar voru vaxtatöflur MP banka, Íslandsbanka, Landsbanka og Arion banka.)
Skrifað í Fræðsla, Statistík | Leave a Comment »
Það einkennir líklega flesta frumkvöðla að vera ofur bjarsýnir og hafa mikla trú á því sem þeir ætla sér fyrir hendur. Þessir kostir eru nauðsynlegir frumkvöðlum því sjaldnast er leiðin eingöngu upp á við og frumkvöðull þarf á allri sinni bjartsýni að halda til að fallast ekki hendur.
Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að margir sem sækja um styrki í fyrsta skipti fyrir sitt verkefni eru ansi bjartsýnir á að þeir hljóti styrkinn. Því miður er raunin sú að fæstir fá styrk en það á ekki að vera neinn dauðadómur yfir verkefninu. Staðreyndin er sú að ef allir ætla sér að bíða eftir því að fá styrk, þá mun lítið gerast.
Flestir frumkvöðlar gefa vinnu sína um nokkurt skeið þegar þeir vinna í þróun á sinni hugmynd en það kemur að því að nauðsynlegt er að fá fjármagn inn í fyrirtækið til að komast áfram með verkefnið hvort sem það er fjármagn fyrir markaðskostnaði, efniskostnaði, ferðakostnaði eða rekstrarkostnaði.
Uppspretta er leið fyrir fólk í atvinnu- og nýsköpun að ná til annarra sem er með fjármagn og vill leggja fram lánsfé til góðra verka. Íslenskir fjárfestar eiga í vandræðum með að ávaxta fjármagn sitt þar sem bankar bjóða upp á lága vexti í ávöxtun og gjaldeyrishöft eru gildandi. Því getur Uppspretta verið leið fyrir fjárfesta að veita lánsfé til spennandi nýsköpunarverkefna og fá betri ávöxtun en mögulegt er í banka.
Náum árangri saman!
Skrifað í Almennt | Leave a Comment »
Við hjá Uppsprettu tókum eftir því að það er gat á markaðnum. Frumkvöðlar geta náð sér í fjármagn hér og þar en á nánast öllum stöðum er gert ráð fyrir að viðkomandi sé kominn svolítið af stað með sinn “business” og þurfi að minnsta kosti 20 milljónir til að geta fengið styrk eða fundið annað fjármagn.
Við ákváðum því að koma með lausn sem gerir fólki kleift að sækja um lægri lán fyrir verkefni sem er skemmra á veg komið. Dæmi um lánaumsóknir gætu verið:
- Vöruhönnuður sækir um lán fyrir efniskostnaði svo hann geti byrjað að framleiða og selja vöru sína
- Hugbúnaðarfyrirtæki vantar fjármagn fyrir markaðskostnaði
- Sprotafyrirtæki sækir um lán fyrir tæknibúnaði/tölvum
- Lán fyrir þróunarkostnaði
- o.s.frv.
Staðreyndin er sú að lánveitendur á Uppsprettu vilja sjá ný verkefni blómstra og ný stöf verða til.
Ljóst er að fólk þarf að útskýra hugmynd sína og styðja hana mjög vel með texta til að geta fengið lán á Uppsprettu. Lánveitendurnir sem eru inni á Uppsprettu vilja sjá það að sá sem þeir eru að lána til séu fyrst og fremst með góða hugmynd og í öðru lagi að það fái á tilfinninguna að umsækjendur séu traustsins verðir. Þess vegna er mikilvægt að vanda lánsumsóknina. Það sem starfsmenn Uppsprettu ráðleggja þér að gera eftirfarandi:
- Lýstu verkefninu sem þú ert að fara af stað með vel undir “Tilgangur láns”
- Láttu helstu markmið koma skýrt fram
- Nýttu þér samfélagssíðurnar og settu inn t.d. kynningu um þig eða fyrirtæki þitt á slideshare og linkaðu það á síðuna þína hjá Uppsprettu
- Vandaðu málfar þitt og fáðu einhvern þér nákominn til að lesa yfir umsóknina
- Fylgstu með því hvað aðrir lántakendur eru að gera
- Vertu ósmeykur við að kynna lánsumsóknina þína með því að segja vinum þínum á facebook og twitter frá umsókninni, þannig eykur þú möguleika þína á að fá lánið
- Vertu óhrædd/óhræddur að hafa samband við starfsmenn Uppsprettu í gegnum uppspretta@uppspretta.is ef þú vilt aðstoð
Náum árangri saman!
Skrifað í Fræðsla | 1 ummæli »
Í janúar 2009 ákváðu aðstandendur Uppsprettu að gera eitthvað róttækt til að taka þátt í uppbyggingunni sem ljóst var að þyrfti að eiga sér stað á Íslandi. Okkur langaði að gera eitthvað til að hjálpa sprotafyrirtækjum að fóta sig og fórum að kíkja í kringum okkur og athuga hvað hægt væri að gera. Eftir heilmikið heilabrot og pælingar ákváðum við að það væri kominn tími á að bjóða upp á örlánavef á Íslandi og þann 1. október 2009 fór Uppspretta í loftið.
Örlánavefurinn Uppspretta byggir á hugmyndafræði sem hefur verið til í fjölda ára. Erlendis hefur þetta verið kallað “microloans”, “social lending” og “people to people lending” og til er fjöldinn allur af vefum sem byggja á þessari hugmyndafræði. Fyrst urðu til vefir sem voru til þess gerðir að hjálpa litlum fyrirtækjum í þróunarríkjum að fóta sig en síðustu ár hafa fleiri og fleiri vestrænar útgáfur orðið til.
Á Uppsprettu getur fólk óskað eftir láni eða lánað öðrum. Lántakandi setur fram sínar hugmyndir og óskir á vefnum og laðar þannig að sér lánveitendur. Uppspretta er ekki banki heldur miðlar lánsfé á milli lántakenda og lánveitenda. Á bak við hvert lán eru yfirleitt fjölmargir lánveitendur.
Tilgangurinn með Uppsprettu er að gera þeim sem eru með góðar hugmyndir kleift að fá lánað fyrir þeim. Fjölmörg sprotafyrirtæki eru að stíga sín fyrstu skref en ljóst er að erfitt er að finna fjármagn. Svo dæmi sé tekið getur t.d. vöruhönnuður fengið lán fyrir efniskostnaði til að geta hafist handa við að framleiða vöru sína eða lítið hugbúnaðarfyrirtæki fengið lán fyrir markaðssetningu.
Skrifað í Almennt, Fræðsla | Leave a Comment »